Mjása litla;)

Úje Baby!

05.01.2008 16:41:50 / hafdis

Ný síða komin!

Jæja þá er nýja síðan tilbúin og er slóðin á hana: http://snati.bloggar.is/ og endilega látið vita af ykkur á henni;)

kv. Hafdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 22:52:52 / hafdis

Nýtt ár!!

Gleðilegt nýtt ár!!! og takk fyrir það gamla!!!

 

Ég er að fara að vinna í nýrri síðu svo að þetta allt að koma!!;)

love ya!!

kv.Hafdis


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 23:30:12 / hafdis

Aðfangadagur á morgun;o)

Jæja ég verð nú að fara að standa við það sem ég var búin að lofa, og það er að blogga. En ég var að spá í að fara að fá mér nýja síðu, vegna þess að þessi síða er alltaf að hrynja og eitthvað meira. En hvar á ég að byrja, já ég  kláraði mitt síðast próf 11. des. og daginn eftir það forum við Matti suður og vorum þar í rúma viku eða svo (5 daga). Og á þeim tíma var farið 2 í bíó, nánast alla daga var hlupið í Kringluna eða Smáralindina. Sem var bara asskoti gaman;), svo fékk ég ótrúlega flottan kjól í jólagjöf frá mömmu hans Matta!!!! Bara geggjaður (Verð í honum á morgun;) En svo var maður að hitta ættingja og vini og bara haft það gaman. Svo komum við heim á… uuuuuu….. já á mánudeginum 17. des. og það er bara búið að vera að taka til á fullu, skreyta og fleira!;) Bara haft það gaman, farið í fjós og pakkað inn sirka 100 pökkum!  En Ég er að spá í að fara að halla mér núna, því það verður vaknað snemma á morgun, fengið sér heitt súkkulaði og smákökur, og svo í hádeginu verður fengið sér möndlugraut og svo um kvöldið verður bara  allt á fullu, góður matur, opnað pakka og fleira.

En ég segi bara góða nótt og  GLEÐILEG JÓL!! OG SJÁUMST HRESS OG KÁT Á NÝJU ÁRI!!!!

Kv. Hafdis

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 14:49:42 / hafdis

Tæknilegir öðruleikar..

Piff.. anskotans bloggsíða! En jæja, 5. des. í dag sem þýðir að eru aðeins 19 dagar til jóla!:D og þetta veit ég þvi Matti gaf mér nammidagatal:D;) Tíhí, svo að ég get borðað einn dag alveg þangað til 24.. hehe... mér finnst það geggjað, tíhí! En prófin eru í gangi núna og núna er ég búin með 2 af 5 og þetta styttis óðum! En ég er búin nákvæmlega 11. des. og þá er nánast farið stax í borg óttans og farið að versla restina af jólagjöfunum. Sem er bara geggjað! Verðum 3 elstu systkinin að versla ásamt mökum, djöf. verður það geggjað.. hehe... En mér gengur bar ógó vel í prófunum, allavega þessum tveim sem ég er búin að fara í og búin að fá úr 2 og ég náði þeim:D sem er geggjað!

En hvað segið þið? ekki farin að hlakka til jólanna?? Jaa mér er allaveg farið að hlakka pínu til, meira að segja búin að skreyta svalirnar mínar og gluggana í stofunni:D,kisu fannst það pínu skrítið fyrst.. en sem betur fér lét hún seríurnar vera. Ég er samt eiginlega að lúga að ykkur, ég hlakka geggjað til jólanna núna, ekki bara af því að er bara æðislegt að vera heima í sveit þá, heldur verður Matti hjá mér um jólin og ég er að springa af spenningi við að hafa hann hjá okkur:D:D:D;) En elsku bestu vinir mínir, ég ætla að láta þetta nægja í bili, því ég ætla að leika mér aðeins áður en ég fer að læra undir spænsku próf. Svo ég segi bara bless í bili

kv.Hafdis


Hestar, ég elska hesta og þetta er bara fallegt!!

Mustang
Elska þetta ljóð!, bara fallegt!


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 22:06:17 / hafdis

Hætt þessu loforði...

Guð ég verð að fara að hætta að segja að ég ætli alltaf að vera geggt duglega að blogg og svona... Svo að ég segi það bara ekki meir. Hins vegar ætla ég að REYNA eins mikið og ég get að blogga um jólin. Því þá hef ég virkilega tíma til þess og þá er ég líka vonandi komin með nýja myndavél. Og get sett nýja myndir inn á síðuna. Það er líka eitt, ég nenni ekki að blogga ef ég he enga myndir til að setja inn á hana... Það er ekkert gaman að blogga og hafa engar myndir um það. Eru þið ekki sammála?? En hins vegar er voða fátt að frétta nema að það styttist og styttist til jóla og ég er meira að segja búin að kaupa 5 jólagjafir!!:D ooo ég er svo dugleg, en hins vegar er ég að fara suður um helgina í brúðkaup og skírn hjá frænku minni og þá verður keyot meira af gjöfum.. hehe:D... bara svona að klára þetta áður en allt jólastressið kemur. Ójá!!  En ég er geggt ánægð með lífið bara, gengur ógó vel í skólanum, á frábæra vini, fjölskyldu og kærasta... En ég ætla að reyna að finna út hvar myndavélin mín er, annars verð ég að kaupa mér aðra... En ég bið bara að heilsa og farið vel með ykkur í stóra lífinu elskurnar mínar!!!;):)

kv.Hafdis Bára Ó.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 09:51:54 / hafdis

Loksins nýtt blogg!!!

Vá er virkilega kominn mánuður síðan ég bloggaði síðast?? Hvað verður um allan þennan tíma... já það er goð spurning...Jæja hvar á ég nú að byrja....Já Kolbrún átti afmæli 14.sept. Og akkurat um þá helgi fór ég heim og smalaði. Það var geggjað.. Datt tvisvar af baki;) voða gaman.. hehe... ehh.. það var í rauninni fyndið. Sem betur fer sá Óskar bróðir það ekki því annars hefði hann dáið úr hlátri, en hins vegar sá Matti það og hann fékk næstum áfall.. hélt nefninlega að ég hefði meitt mig, en svo var ekki.:)  

Vikunni eftir það, sem sagt 17 – 23 sept. Þá var voða gaman... Skólinn alveg að kæfa mann, Mamma átti afmæli 19.sept. og ég 23. ept. Sem var bara geggjað. Orðin bara 18 ára gömul... Það er aldeilis og ég man svo vel eftir því hvað mér fannst langt í það þegar ég var 14 ára. En svo flýgur þetta svona áfram.. 

Helgina 29 – 30 var farið í Laufskálarétt og ball! Sem var bara ótrúlega gaman, fyrir utan að eyrun mín voru ekki alveg að meika þennan hávaða, en þetta var rosa gaman. Vikunni eftir áttu þrír afmæli, Óli, Þröstur og Davíð frændi. Óli átti 19 ára afmæli 4.okt. Þröstur átti 20 afmæli 5.okt og Davíð sunnudaginn 7.okt.
Sama dag og  stjúpi hans Matta dó. Það er svona helsta ástæðan fyrir því að maður er eiginlega ekkert búin að láta heyra í sér eða neitt annað.

Skólinn búinn að vera alveg brjálaður og svo þetta með stjúpa hans Matta, jú og svo frétti ég líka það að vinur minn sem ég er búin að vera að vinna með síðustu 2 ár er kominn með krappa og hann er nú bara einu ári eldri en ég!!! Meina... hvað er málið!! Mér líkar ekkert við að fara í jarðarfarir... Hmm... En svona er lífið víst... En í gær gerði ég nú það stórmerkilega að fara með Kolbrúnu heim til Oddnýar og Sigríðar og höfðum svona stelpnakvöld, og svo eftir það kíkti ég á Alla...

Sem var ótrúlega gaman!! En annars hef ég það bara allt ágætt núna:) Ég er að fara að setja nýja skoðanakönnun og kannski aðrar myndir. En það leiðinlega er að ég er búin að tína myndavélinni minni og ég finn hana hvergi svo að ég hef ekki geta tekið neinar nýjar myndir!! Búhú!!  

En ég gefst ekki upp... En ég ætla að hætta þessu babli núna og reyna að gera eitthvað fyrir þessa síðu. 

Hafdís

untitled2


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 16:44:52 / hafdis

Nýjar myndir komanar...

12. sep. 07.... góður dagur... Er búin að vera í skólanum í allan dag... já eða svona næstum. Var búin 14:40 og fór svo og sýndi Antoni hvað Frumherji væri, svo að hann gæti nú farið með bílinn sinn í skoðun áður en það væri klippt af honum;)... hehe... En já svo núna er ég bara að leika mér í tölvunni og babla við fólk.
En já í sambandi við myndirar sem ég ætlaði að taka um síðustu helgi þá varð bara því miður ekkert úr því. Vegna þess að ég finn bara ekki myndavélina mína!.. búhú!!... hvar er myndavelin mín???? Já það er góð spurning...
En ég held að ég láti þetta bara gott heita og fari að gera eitthvað gáfurlegt eins og að ákveða hvað ég ætla að hafa í kvöldmatinn.
En annar var eg að setja inn nýjar myndir sem eru af kisunni minni.. og svo núverandi...
 En þangað til næst... þá farið þið ykkur bara ekki að voða og ég kveð að sinni! Kv.Hafdís sæta;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 10:24:11 / hafdis

Jæja ætli maður bloggi ekki ;o)

Já ætli ég verði ekki að fara að blogga svo að fólk hætti að kvarta:) hehe.... En það er bara voða lítið búið að vera að gerast hjá mér annað en skólinn. Jú ég fór á Papaball um helgina með Jófríði, Hlyn og Matta og það var bara ótrúlega gaman. Ég vona að ég geti fengið myndirnar hjá Jófríði svo að ég geti nú sett þær hérna inn á síðuna. En já ég ætla samt að afsaka bloggleysið mitt, en ég hef bara ekki haft neinn tíma til að geta bloggað, sett inn myndir og fleira. Því að ég mætti í skolann fyrsta daginn og það var bara próf í næstu viku og test á morgun og fleira:|, svo að ég bara biðst forláds.

En hvað er framundan, nú... ég var að koma úr mjög skemmtilegum uppeldisfræðitíma þar sem Ég, Hulda og Anton misstum okkur alveg í því að hanna skóla og svo kom einn strákur inn í hópinn til okkar. En ég sá það alveg að við værum fyrirmyndar arkitektar!:D;)... Hehe ójá!
En annars er allt annað framundan hjá mér! Ég er að fara heim í sveit á eftir og fara upp á heiði með pabba, því að ég er að fara að smala á fimmtudaginn og föstudaginn og það þarf að fara með 2 hesta upp á heiði í kvöld.

Ég hlakka geggjað til! og ég ætla rétt að vona að það verði gott veður á meðan ég er að smala, en.... það getur allt skeð:D Og það verður sko tekið fullt af myndum og þá fáið þið sko að sjá fallegt landslag..;) hehe!

En núna ætla ég að fara að fá mér að borða... svona áður en ég fer aftur upp í skóla!
Svo átti Alli afmæli í gær og ég segi bara innilegar hamingjuóskir með það Alli minn!

En ég kveð núna að sinni:)
kv. Hafdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 18:49:47 / hafdis

Skólinn byrjaður einu sinni enn:D

Hehe... Já það er alveg ótrúlegt með þennan blessaða tíma. Mér fannst eins og sumarið væri bara að byrja... En nei nei þá er bara skólinn byrjaður aftur og ég að byrja mitt 3 ár í skólanum!!! Vá! Mér fannst eins og ég hefði verið að byrja í VMA í fyrra.... En svona er líið eins og ég segi alltaf:D.. hehe... En já það er kominn nýr fjölskyldumeðlimur á heimilið:D, heitir hún Mísla og er lítil kisa;)... Hún er geggt sæt, ég fékk hana hjá Lillý :D. Takk Lillý hún er bara algjört æði:D En já Akureyrarvaka er núna um helgina og þá er um að gera að fara út að gera eitthvað gáfulegt;). Svo ætlar Gummi og Lilja að hitta okkur á eftir... og það verður alveg áræðanlega gaman:D... En ég ætla að fara að reyna að gera eitthvað fyrir þessa blessaða síðu.... svo að ég kveð að sinni.

Kv. Hafdis:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 22:29:07 / hafdis

Danaveldi um Versló!

Jæja ætli maður bloggi ekki um blessuðu Danmörkuferðina:D hehe... 

31.7.2007
Komum heim til systur Matta um tólfleitið, mér var illt i hausnum og óglatt, já og súpper þreytt. Svo að við fórum bara beint að sofa. 

1.8.2007
Við sváfum vel frameftir, fórum svo með Kristrúnu (systur Matta), Liam og Atla (strákunum hennar) í smá göngutúr og versluðum okkur að borða. Fórum svo heim, borðuðum og horfðum svo bara á tv-ið. Spjölluðum saman og svo var farið að sofa. 

2.8.2007
Já við lágum bara allan daginn í leti og höfðum það bara gott:D 

3.8.2007
Góðan daginn!! Jæja þennan blessaða dag skruppum við í “smá” Moll með Kristrúnu, já það var verslað ekkert mikið! Svo fórum við fljótlega heim því ég var alveg að deyja! Var með hita og læti!! Jamm svona er þetta stundum.... En svo þegar við komum heim þá var bara borðað og slakað á. 

4.8.2007
Aldrei var vaknað snemma:D hehe... En planið þennan dag var að fara í dýragarðinn með Erik, Kristrúnu og strákunum. Ég hef náttúrulega svo mikinn áhuga á dýrum að mér finnst aldrei leiðinlegt að fara í dýragarð!;) En já þar vorum við nánast allan daginn. Þangað til að kvöldverðurinn var, sem var alltaf kl. 18:00, þá meina ég alltraf:D;) Hehe... Það var pínu fyndið og auðvitað eldaði Erik alltafJ .... hehe... En svo var bara horft á mynd eins og vant var og spjallað samanJ Það er auðvitað ógó gaman. 

5.8.2007
Það var kominn sunnudagur og ég trúði því engan veginn að við værum búin að vera í fimm daga í burtu!! VÁ!! En svona er tíminn fljótur að líða, þennan dag var samt farið i annan dýragarð. En hann var opinn, sem var mun skemtilegra. Við sáum þegar var verið að gefa úlfunum, uxunum, gorillunum og nashyrningunum og það var bara geggjað!:D hehe.. Svo þegar var komið heim um 6 leitið, þá fór Erik StraX að elda því hann var orðinn seinn með matinn! Hehe:D og auðviað stríddum við honum á því, en hann var svo góður og grillaði fyrir okkur alveg frábæran mat. Líka af því að þetta var síðasta kvöldið okkar hjá þeim, því við vorum að fara til Bjögga (Bróðir Matta) daginn eftir. Svo var farið snemma að sofa til tilbreytingar. Hehe:D 

6.8.2007
Já mánudagurinn rann upp og við vöknuðum snemma til þess að fara með rútunni niður í bæ og svo lestinni til Köben. Kristrún fór með okkur í rútunni og fylgdi okkar að lestinni (þvi hún þurti hvort sem er að fara til læknis í bænum). Við vorum svo 1 og hálfa klst. í lestinni þangað til að við vorum komin. Svo á áfangastað þá var Bjöggi mættur til að hjálpa okkur heim til hans;) En srax og við vorum búin að henda töskum inn í húsið þá var farið að versla eða SHOP LIKE YOU DROP ! Hehe eins og það er sagt. Ég man samt ekkert hvað ég keypti hvaða dag. Svo var bara chillað.   

7.8.2007
Humm.. Ég man engan veginn allt það sem við gerðum hjá Bjögga því við fórum út um allt! En jú ég man  að við fórum i Tívolí þennan dag og það var alveg ótrulega gaman!! ÓJÁ! Hehe.. Vorum þar alveg frá 5-8 en áður vorum við búin að vera á strikinu að flippa, sem var ógó gaman. En það var samt best í Tivolíinu þegar Matti var alltaf að reyna að vinna bangsa fyrir mig, sem gekk ekki alveg.. Hehe:D Svo seinna um kveldið fórum við með Bjögga ð hitta vini hans, sem var bara kósí:D En svo eftir langan dag var bara skiðið upp í rúm og sofnað! 

8.8.2007
Fórum og hittum Sirý (Sem er vinkona Bjögga) aftur á vinnustað hennar og þar eldaði hún handa okkur svona Brunch, sem var bara ógó gott (En alltaf saknaði ég íslenska matsins). Eftir það fórum við til Sigrúnr og Kamellu (Vinkonur Bjögga;)) vorum þar í pínu stund en fórum svo bara heim að horfa á mynd og svo var farið að sofa... Eða rétt er sagt að ég sofnaði... hehe:D 

9.8.2007
Jæja... heimferðardagurinn... Við vöknuðum ekki fyrr en um hádegið og gerðum eiginlega ekkert allan daginn þangat til að við fórum út á flugvöll sem var um 6 leitið (Eða þá vorum við komin þangað) Fórum svo með flugvélinni 19:45, og vá hvað ég var spennt að komast heim. Svo var bara komið heim til Matta og spjallað aðeins og svo bara farið að sofa... hehe:D Jahá mjög athyglisverð ferð:D

En núna er ég búin að vera að skrifa svo mikið að ég get ekki sagt neitt meira... En eins og ég lofaði þá laga ég síðuna mína eins fljótt og ég hef tíma til þess. 

Kv. Hafdís

 

 

Elska þessa hunda!!
Já og hver vill gefa mér einn svona? Kostar ekki nema 260.000 kr. Bilun!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 22:21:53 / hafdis

Hugsi....

Ég ligg hérna upp í rúmi og hugsa.... Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur hugsað mikið og altaf á endanum kemur spurningin: "Af hverju?" Af hverju er himininn blár?? uuu að því að hann re ekki blár og fleiri dæmi. En spurningarnar vakna samt mest upp þegar maður kemur að einkalífinu!
"Af hverju?" Að því að það er okkur blóð borið, okkur er ætlað að hugsa svona mikið um það til þess að reyna að villa um fyrir okkur. Þess vegna skulum við ekki hugsa of mikið um þessar spurningar! Því við munum aldrei fá svör við þeim og þær eiga bara eftir að gera okkur vansæl ef við látum eftir og höldum áfram að hugsa og vera með efasemdir.
T.d. hver kannast ekki við spurningarnar: " Af hverju er hann/hún ekki hrifin/nn af mér?", "Af hverju er ég ekki sætari?"
Við verðum bara að sætta okkur við staðreyndir.... og vera sárr með útlitið okkar því það er eitthvað sem við verðum að vera sátt með.
Ég er samt komin algjörlega með leiða á mínum hugsunum, þannig að mig langar ótrúlegar að komast burt héðan. Fara upp á hálendið að leika mér með þessum vitleysingum sem ég dýra og dái!!:D

En vá hvað ég er búin að vera að væla hérna lengi svo að ég ætla að fara að segja eitthvað sniðugt.. eins og.... að..
Ég fór suður síðustu helgi með Matta að hitta Bjögga bróður hans sem býr úti í Danmörku. Það var voða stuð. Endaði meira að segja á því að á laugardagskveldinu fórum við (Ég, Matti, Bjöggi og Dagga) í SingStar partý hjá frænku þeirra (Ingu), og þar hitti ég Kristján og Búa sem eru náskildir Sólrúnu og Tomma;) Það var voða gaman....Svo var farið niður í bæ og skemmt sér aðeins meira:D
En á sunnudeginum var bara haft það rólegt! Ójá!... hehe:D
En svo í næstu viku verður það Danmörk og ég er alveg vel spennt skomm.. Þótt að mig langi samt líka til eyja;), en svona er þetta... maður verður að velja og hafna...

En ég kveð að sinni og vinnan á morgun og svo ættarmót um helgina:D

kv. Hafdís litla:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 22:00:55 / hafdis

Ein önnur helgin búin...

Já þessar blessuðu vikur og helgar þjóta framhjá manni eins og ég veit ekki hvað... En núna var það Húnavakan á Blósi og frumsýning á Stöðvar 6 myndinni. En það mættu rúmi 20 bílar og fellihýsi á túnið heima og það var bara ótrúlega flott að sjá það:D ÞVí miður gátum við ekki séð alla myndina því við brunuðum niður á Blönduós til að taka okkur til fyrir ball:)
Sem var  bara fjandi gott:D.. hehe...

Ég veit reyndar ekki hvað ég á að segja annars... nema að við förum út 1 ágúst (ég og Matti) og erum alveg til 9. Sem er bara geggjað. Og svo er það bara að vinna, fara á hestbak alla daga og þess vegna kemst maður aldrei í tölvuna til þess að blogga eitthvað..... En svona er þetta.

Ég lofa að uppfæra bloggið alveg upp á nýtt þegar ég get það og ég vona að ég geti það sem fyrst:D 

En þangað til næst.

Hafdís flipper;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 12:57:23 / hafdis

Er það Danaveldi eða Þjóðhátíð um Versló??

Já sumir geta bara verið svo gáfaðir að gleyma að pannta miðana til Danmerkur eða ekki átt pening til þess og láta mann bara ekkert vita! En já ég var búin að segja Matta svona 100 sinnum að það þyrfti að panta miðana sem fyrst. En hann átti víst ekki pening þá en gat samt borgað öllum öðrum.... hummm.... Nei ég segi svona..

En ég er samt dálíti spæld yfir því að geta kannski ekki farið því ég kemst þá bara ekkert út fyrr en ég fer í jólafrí! Og það er bara púkó að fara þá.... En ef við förum ekki þá ætla ég bara að panta miða í Herjólf sem fyrst! Því þá er ég bara farin á Þjóðhátíð og ætla sko að detta í það;)... Hehe með henni Valgerði minni, Huldu og vinkonum:D Það væri bara gaman!!!

En þetta kemur allt i ljós núna á næstunni. En núna er það bara tvöfalt brúðkaup næstu helgi og ég er bara búin að vera að vinna eins og brjálæðingur alla helgina og Munda alveg að gera út af við okkur í eldhúsinu;):D... hehe... en ég svaf í 11 klst.!! í gær... Því ég lak bara niður strax og ég lagðist upp í rúm!

En ég er að spá í að slútta þessu núna og fara að gera eitthvað af mér hérna í tölfunni hans Matta víst að hann er ekki heima... hehe... Finna klámið hans og svona... ;)

K.v. Hafdis The Flipper;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 19:59:02 / hafdis

Asskoti góð helgi;)

Já ég get nú ekki sagt annað en þetta hafi bara verið asskoti góð helgi hjá okkur Matta;):D. Hún byrjaði á því að við brunuðum á fimmtudagskveldinu suður og heim til mömmu hans Matta... daginn eftir var bara vaknað snemma og farið að VERSLA!!! Ójá það er sko útsala í gangi núna og ég missti mig alveg í búðakaupum! Keypti mér skó, ótrúlega Flottan kjól, nærföt (sem eru bara flott), snyrti dót, CD og eitthvað fleira:D.....

Um kvöldið fórum við svo til Ömmu og afa. Hitti muttu mína og frænku líka þar og skelltum svo okkur í bíó á Die Hard 4:D og tókum auðvitað Valgerði frænku með:D Eftir myndina var bara rúntað aðeins því ég var að bíða eftir því að Hulda vinkona kæmi úr afmæli svo að ég gæti hitt hana:). Loksins gat ég hitt hana og það var bara ógó gaman:D;)... Svo var bara farið heim að sofa...

Í gær var farið aðeins meira í að versla og svo var bara ákveðið að fara heim, því amma og afi voru í bústaðnum. Við ákváðum svo að fá hann bara í láni í ágúst svo við getum bara verið ein þar og haft það kósí;)

Svo núna var ég að koma úr gönguferð í hrútey;).. hehe... það var bara ógó gaman! Og núna ætla ég að fara að fá mer að eta;)

blessó!

K.v. Kanínukrútt!!

P.s. Matti á sætasta frænda í heimi!!!!:D Og við Matti erum búin að vera saman í hálft ár!!!!!!:D;)

 

Funny Jokes Pictures of Cat and Owner with Ugly Mask







 

ȁŗ̈∠ъ儰ဂ﬐ϋ

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 19:17:25 / hafdis

AAA!!!!! Urrrrr...........

Ég hata þetta blogg!!... Ég var að verða búin að setja allar myndirnar frá Vatnajökli inn þegar ég ætlaði bara að staðfesta en nei nei... Þá bara hverfur allt draslið og forsíðan kemur bara!!! Vá hvað ég varð brjáluð!!! Ég gleymdi að gera copy!!! Urr... Þannig að ég ætla kannski að reyna aftur um helgina að setja þetta inn!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Jeppasíður og fleira! :)